Kára Saga

Af ævintýrum sem gerast í fjarlægum löndum

Danmerkurför

Verður skrásett hér á þessarri bloggsíðu. Munum við yfirgefa þessa eyju 25 ágúst og planta okkur í Sonderborg, 30.000.- manna bæjarfélagi við landamæri þýskalands. Octoberfest,leðurbuxur og yfirvaraskegg bíða okkur hinum megin við girðinguna.

Sonderborg

Saga og Kári

Saga 2 ára


Nú er hún Saga okkar flotta orðin 2 ára gömul...Það er ekkert smá sem að tíminn líður hratt og litla lukkutröllið okkar orðið að aðeins stærra og sniðugra lukkutrölli.....

Hún er nú frekar ákveðin, sniðug og klók hún Saga og lætur foreldra sína ekki plata sig.....Það þýðir ekkert að segja við hana bless nú er mamma farin ef hún vill ekki koma með þá kemur hún ekki með. PUNKTUR. en sem betur fer þá er hún með svo lítið hjarta að það er alltaf hægt að segja "fljót Saga það er að koma bíll, passaðu þig" og þá er eins og að hún fái eldingu í rassinn svo fljót er hún.

Hún Saga er mikill dundari og ofsalega góð við allt og alla. Bangsarnir og dúkkurnar fá þessa fínustu þjónustu og er lesið og sungið og puntað heilu dagana. Hún getur verið inní herbergi með dúkkunni sinni í lengri tíma og svo þegar að maður fer að gá að henni þá liggur hún uppi í rúmi að lesa fyrir hana..

Þessi litla snót er einnig mikil leikona og tekur helst þátt í miklum Dramaleik. Hún getur kreist fram tár á nó time og öll svipbrigði fylgja með....Um daginn datt hún á hnéð á sér og skrapaði það. Það var auðvitað settur plástur á og allt varð betra. Nema hvað að einn daginn datt plásturinn af og þá var sem himinn og jörð færust þannig að það var ekki annað þorandi en að setja annan á. Þann dag þegar hún var sótt á leikskólann hélt hún þétt um hnéð og enginn mátti snerta það. Allt í lagi með það en svo fór að líða á kvöldið og enn hélt Saga um hnéð og harðneitaði að stíga í það....Var MJÖG aum.....lá bara í sófanum að glápa á Bamba (en það er hennar uppáhaldsmynd þessa dagana og er í ganga sirka 5 sinnum á dag....)En allavegana nú var Eyþór farin að spá í að taka leigubíl upp á sjúkrahús þar sem að eitthvað var greinilega að.....Ekki mátti snerta plásturinn eða hnéð og allt í vitleysu.....Nema hvað Eyþór reif pðlásturinn af til að kíkja á sárið en ekkert sást og Saga fjúkandi ill......Enn aum og ónýt í sófanum þá ákveða þeir feðgar að skella sér í fótbolta á stofugólfinu og hver haldi þið að hafi verið snögg með í leik...já hver önnur en hún Saga litla dramakona......Hún var semsagt að passa að plásturinn dytti ekki af og svoleiðis blóðmjólkaði alla af vorkunn...........

Nú akkúrat þessa stundina liggur Saga með kvef uppí sófa með dúkkuna sína að horfa á Bamba....Í dag hafði verið ætlunin að halda heljarinnar veislu en þar sem að 75% af fjölskyldunni er lögst í flensu að þá var henni aflýst. Saga fékk hins vegar pönnukökur og kakó á afmælisdaginn og opnaði nokkra pakka (Eða Kári er búin að láta afmælisbarnið opna pakka). Hún fékk þenna flotta rauða dúkkuvagn frá foreldrunum og gemsa frá brósa. Hún fékk flíspeysu og húfu frá Ellý og Svenna afa og svo bækur frá lang ömmu og lang afa á Bestó með þessu flotta ljóði....

Saga er lítil snotur mær
sem oss mætti vera nær
með augu er tindra undur skær
ástarkveðjur okkar fær



Við eigum svo von á einhverjum pökkum í pósti svo að það verður mikil pakkagleði á næstu dögum......

Knús til ykkar allra

Myndir

Það kom að því gestirnir eru farnir. Hvað á að gera nú?

Frá því að Kolla náði því einstaka afreki að koma hingað og eyða MINNA en maðurinn hennar hafði búist við (mistök sem hún er staðráðin í að gera ekki aftur), höfum við verið upptekin í gestfjafa hlutverki í rúmann mánuð núna.


Góður gestgjafi þekkir svæði sitt vel, skipuleggur allt í þaulann og er umfram allt áhugasamur um tilveruna í kringum sig, sögu, menningu og byggingar fornra tíma.

Höfum við því sett okkur það markmið að ráða eitt stykki svoleiðis fyrir næsta sumar. Einhvað höldum við að hafi vantað upp á þessa hæfni hjá okkur, allavega fór að renna á okkur tvær grímur er gestirnir voru byrjaði að segja okkur hvað við gætum gert hérna. Jóna vildi taka alla á kaffihús bara, á hverjum degi. Og Eyþór vildi helst bara vera í garðinum fyrir utan. Þegar svo Bessa kom, var pressan orðinn svo mikil á að koma með einhvað , að Jóna ákvað að drífa alla í jarðberjatýnslu sem endaði í lautarferð á fótbolta velli í smábæ einhversstaðar.

En komið hefur í ljós að líklega höfum við aldrei ratað þangað þar sem það eru tíu ár síðan þeir hættu þessu.

Þessi eldgamla keyrði um á tryllitækinu sem við leigðum, og voru hjólin notuð til hins ítrasta. Þrátt fyrir einhver smáatriði eins og engar handbremsur og svona.

Sara varð svo eftir og fórum við í Summerland Syd og Legoland og sjaldann hefur einn maður verið eins ánægður og vera orðinn 15 centimetrum yfir meterinn...upp á millimeter fékk Kári að fara í stærri tækinn með okkur hinum....

Á kvöldin var svo horft á Chuck og reynt að kaupa einhvern flakkara sem er tækni sem Danir eiga eftir að uppgvöta. Þessi flakkari er hérna enda ætlaði ég að færa mjög svo löglegt efni yfir á hann, þegar tölvan bilaði, svo fór skjárinn eftir tölvuna. Þannig að ég er byrjaður að skilja að Borgar nenni ekkert að downloada fyrir þig Sara.

Svo fór Sara og DR Svíþjóð og Frú Lind komu til okkar frá landinu sem framleiðir greinilega kex í massavís. Bílaleigu bíll leigður og haldið til Flensborgar þar sem allir keyptu sér bjór og gotterí.....miðbærinn labbaður og Flenborgar ölnum gefinn falleinkunn.....

Í dag var svo fínt veður og ströndin tekin á þetta, fyrir utan greyjið Jónu sem þarf alltaf að vinna.......

líf án barna

Jóna keypti eitt hjól í hjólabúðinni um daginn, Stuttu eftir það fengum við annað hjól frá honum Sverri sem fór til Íslands í sumar. Þetta plús hjólið sem Jóna fékk á markaðinum handa Kára, þýðir að við erum komin með fjögur fullorðinshjól og þrjú barnahjól. Svo það ætti að vera hægt að splæsa undir mannskapinn hjólakosti þegar hann kemur.

Við fengum líka hornsófa sem hægt er að breyta í svefnsófa í stofuna, hann plús lazyboy-inn ætti að duga svo allir geti nú sest niður eftir allt hjólerí-ið. Hún minnkaði nú stofan aðeins við þetta, en við eigum allavega einhver húsgögn til að setja í stærri íbúð ef við flytjum einhverntímann.

Við vitum ekkert hvað við eigum að gera af okkur, svona þegar 24 tímar í sólarhringnum eru komnir aftur. Þannig að Eyþór er bara að læra og Jóna að vinna alla daga. Við ætlum að reyna að hringja upp í Rodekro og finna þetta blessaða rafmagnsþríhjól fyrir ömmu, enda fer að líða að þessu.
 

Counter

Myndir

www.flickr.com
kariogsaga's items Go to kariogsaga's photostream

Planarinn